Það er einhvernveginn þannig að því meira af skemmtilegum hlutum sem ég geri, því minna blogga ég. Svei mér þá. En ég segi það og skrifa að ég ætla að koma með Búdapest blogg, Washington blogg og Ljubljana blogg áður en langt um líður. Nú er ég nefninlega á fullu í ritgerðarskrifum sjáiði til. Þá er alltaf sniðugt að finna sér eitthvað annað að bjástra við... ehmm já.
Talandi um ritgerðina. Ég er komin núna vel á veg með að dúndra niður efni. Ég er svolítið að tækla þetta bara þannig að ég reyni að bauna útúr mér öllu því sem mig langar að koma að. Fagurfræði, formfræði og setningarfræði fá að bíða betri tíma. Mér finnst ritgerðarvinna bara ofsalega skemmtileg. Ég er að vísu alveg að fara að verða búin að geta frestað þessum leiðilega erfiðu köflum en þó þeir séu ef til vill strembnastir þá er svo gaman að lesa og fræðast um ritgerðarefnið að ég bara ætla ekkert að vorkenna mér neitt yfir því. Ég er nokkuð viss um það að ég hafi fundið mitt áhugasvið loksins. Alþjóðalögfræði er eitthvað sem heillar mig gífurlega og mikið sem ég vonast til að geta unnið við það í framtíðinni. Verst hvað Ísland er mikill útjaðar þegar kemur að þessu. Við sjáum til.
Það styttist heldur betur í flutningana. Við losum íbúðina í lok júlí og það er allt í einu bara kominn miður júní svo það er nóg að gera á skipinu. Akkúrat þessa stundina er allt upp í loft og heimilið okkar eins og lager þar sem við erum að sortera í geyma, selja, gefa, henda hrúgur hér og hvar. Þetta gæti verið fullt starf fyrir tvær manneskjur í tvo mánuði að fara yfir þetta blessaða dót sem við höfum sankað að okkur sl. 5 ár. En mikið sem ég hlakka til að vera búin að fara í gegnum þetta og einfalda okkur lífið. Það er þegar farið að láta á sjá. Blenderinn okkar fékk sér nýtt heimili svo að nú verður ekki meiri booztgerð á Eggertsgötunni. Þá eignaðist kerran okkar framhaldslíf áðan. Rétt í tæka tíð fyrir 17. júní... kannski ekki smartasta trixið í bókinni en sonneritta.
Jæja, nú er vinnudagurinn víst búinn í bili. Ég þarf að fara að sækja skottið mitt litla sem er reyndar ekkert svo lítil lengur. Hún er sko að verða ÞRIGGJA ára um helgina og stefnir allt í þriggja daga veisluhöld. Það er nú eiginlega bara nauðsyn svona úr því þetta er síðasta afmælið á Íslandinu í bili. Oboy..
Tuesday, June 16, 2015
Monday, April 6, 2015
Besta ákvörðun sem ég hef tekið
Jæja, þá er komið að þessu.
Ég er stödd í Washington (og búin að vera hér síðan á fimmtudag) og fyrsta keppnin mín er í kvöld kl 19.
Í gær opnunarseremónían og ég á eiginlega engin orð.. Hér eru yfir 600 laganemar hvaðanæva að úr heiminum. Við erum að tala um Afghanistan, Albaníu, Argentinu, Armeníu, Austurríki, Ástralíu, Bahamas, Bahrain, Hvíta Rússland, Belgíu, Brasilíu, Bulgaríu, Kambodíu, Kanada, Chile, Kína, Taipai, Kolumbíu, Costa Rica, Kýpur, Tékkland, Dóminíska lýðveldið, Eþíópía, Finnland, Frakkland, Gambia, Georgíu, Þýskaland, Grikkland, Guatemala, Hong Kong, Ungverjaland, Indland, Indonesía, Írland, Íran, Ítalía, Ísrael, Jamaica, Japan, Kazakhstan, Kenýa, Kosovo, Kuwait, Lettland, Litháen, Luxembourg, Macau, Malasía, Mexico, Nepal, Holland, Nýja Sjáland, Nígería, Pakistan, Palestína, Panama, Perú, Filippseyjar, Pólland, Portugal, Puerto Rico, Portúgal, Rúmenía, Rússland, Serbía, Singapore, Slóvakía, Slóvenía, Suður-Afríka, Suður-Kórea, Spánn, Sri Lanka, Svíþjóð, Sviss, Tanzania, Tailand, Trinidad og Tobago, Tyrkland, Úganda, Úkraína, Sameinuðu Arabísku Furstadæmin, Bretland, USA, Uzbekistan, Venezuela, Víetnam og svo Ísland.
Eins og sjá má er þetta alveg ótrúlega fjölbreytt og skemmtilegt, frá nokkrum löndum eru líka margir skólar. Öll liðin voru kölluð upp í gær og gengu með fánann sinn í gegnum salinn og öllum var fagnað. Fagnaðarlætin voru hvað mest þegar Úkraína var kölluð upp (en málið snýst að hluta til um Krímskagann), Palestína fékk líka heilmikil fagnaðarlæti, Kuwait, Kosavo og Kenya líka. Ísland fékk líka extra klapp. Þetta var ÆÐISLEGT! Gæsahúðin er svona rétt að rjátlast af mér.
Mér finnst þetta svo magnað fyrirbæri. Hér er fólk frá allskonar menningarheimum sem lifir ólíku lífi og býr við mjög mismunandi kjör. Eitt eigum við þó öll sameiginlegt og það er Jessup. Við erum öll að flytja sama málið og búin að vera að pæla í sömu hlutunum. Mér finnst ég óendanlega heppin að fá þetta tækifæri til að kynnast þessu fólki og ég ætla mér að nýta það sem best. Keppnin er ekki hafin en við höfum þó haft tækifæri til að spjalla við þónokkuð af fólki héðan og þaðan. Það er nokkuð ljóst að það að taka þátt í Jessup er það viturlegasta sem ég hef gert síðastliðin tæpu 26 ár.
Dagurinn í dag mun fara í að stúdera ræðuna mína enn betur og hlakka til kvöldsins.
Wednesday, March 25, 2015
Af hjartamálum og fleiru
Hæ, muniði eftir mér?
Nú er ég bæði farin og komin frá Búdapest, verð eiginlega að gera sér færslu um þá ferð, hún var æði! Svo styttist í DC - bara rétt rúm vika!!
Annars er ég búin að fá skriflegar og 2x munnlegar niðurstöður úr öllu hjartaveseninu. Þetta á víst að vera það saklausasta í heiminum en vel viðurkennt að ég geti fundið heljarinnar hellings fyrir þessum ósköpum. Það kemur auðvitað ekkert í veg fyrir það að mér finnist eins og ég sé hreinlega að detta niður dauð í hvert sinn sem ég fæ "kast". Ég átti sérstaklega slæma nótt/morgun núna í morgun. Fannst hjarstláttaóreglan standa yfir samfleytt í uþb klst, þó það hafi nú eflaust verið einhver taktur þarna inná milli..
Ég er víst með mun fleiri aukaslög en meðal Jóninn en það á víst að vera fullkomlega góðkynja. Ekki ert vitað afhverju ég er að finna fyrir þessu svona mikið núna en hann segir líklegast að ég hafi alltaf verið svona en ekki fundið fyrir þessu. Stress getur víst valdið því að maður fari að finna fyrir þessu í auknum mæli (nú eða kóffín eða nikótínneysla í óhófi - þar sem hvorugur kosturinn getur átt við um mig stendur bara eitt eftir). Mér finnst það að vísu hálf skrítið því að ég hef oft, eiginlega alltaf, verið mun stressaðari en nú. Nema að vísu útaf þessu hjartaveseni, þá er ég bara heljarinnar hellings stressuð yfir því. Læknrinn segir að þetta gæti verið horfið eftir hálft ár en gæti líka verið eitthvað sem ég mun þurfa að lifa með alltaf. Í fullri hreinskilni þá hræðir seinni kosturinn mig heilmikið.
Ég er núna harðákveðin í að stressa mig ekki yfir neinu, það mun ekkert ná að slá mig út af laginu. Ég ætla að vera dugleg að rækta sálina og líkamann og gera það sem mér þykir skemmtilegt. Ég ætla nefninlega ekki að lifa lífinu í ótta alla daga alltaf. Ég ætla að njóta þess, til þess er það. Það er ENGIN ástæða til að stressa sig yfir hlutunum. Maður gerir bara það sem manni þykir skemmtilegt og gerir þá eins vel og maður getur, leiðindi, stress og pirringur er tímasóun.
Okei? OKEI?! You with me?
Yfir og út

Monday, March 2, 2015
To do
Ég áttaði mig allt í einu á því að ég er á leiðinni til útlanda - ekki á morgun heldur hinn. Ég þurfti þessvegna að kafa ofaní fjallið sem hefur verið að vaxa hægt og rólega uppúr þvottakörfunni minni og þvo svona það nauðsynlegasta. Fattaði líka að ég á engar sokkabuxur, því verður kippt í lag á morgun.
Ég þarf líka að undirbúa svona það nauðsynlegasta og bjarga því sem bjargað verður hvað varðar málatilbúnaðinn. Fyrri keppnin mín er á föstudag, vá hvað ég er spennt! Ef þú hefðir spurt mig, tja, eiginlega bara hvenær sem er á síðustu 25 árum, hvort ég væri á leiðinni að keppa í alþjóðlegri ræðukeppni.. Já, nei, þeirri spurningu hefði ég alltaf svarað neitandi. Þar til í lok desember.
Maður stækkar víst ekki þægindahringinn öðruvísi en að hoppa útfyrir hann öðru hvoru. Ég hvet þig til að gera það sama við sem flest tækifæri.
To do listi morgundagsins lítur því svona út:
- reifa nokkra dóma
- nótera niður basic svör við basic spurningum
- Lesa yfir ræður mótherjanna
- læra ræðuna nokkurnveginn miklu betur
- kaupa sokkabuxur
- pakka í tösku
- knúsa Emilíu Emblu nægilega til að það endist mér þar til á mánudaginn næsta.
Ég er spennt!
Sunday, March 1, 2015
Þetta er ekki flókið!
Gleðilegan sunnudag!
Takk fyrir góð viðbrögð við blogginu frá í gær, það yljar!
Annars langaði mig bara að skilja þetta eftir hér:
Þetta er nefninlega ekki flókin formúla. Fyrir mér snýst lífið einmitt um það að gera það sem manni þykir skemmtilegt, stökkva á tækifærin þegar þau bjóðast, nú eða þá leita þau uppi sjálfur.
Eins og ég hef oft sagt áður þá er ég með nokkuð marga bolta á lofti þessa dagana. Stundum er það pínulítið yfirþyrmandi en oftast er það nú bara skemmtilegt. Þessir hlutir eru nefninilega allir voðalega skemmtilegir! Ég er t.d. á leið til Búdapest eftir ÞRJÁ daga! Já, það er nú sko aldeilis ekki amalegt.
Saturday, February 28, 2015
Kvíði
Þegar ég var u.þ.b. 12 ára kveiknaði eldur í stigaganginum sem ég bjó í. Eldurinn átti upptök sín á fyrstu hæð en ég bjó á fjórðu (efstu) hæð og reykurinn leitaði því þangað. Við biðum úti á svölum þar til slökkviliðið sagði það óhætt að koma niður. Við fórum upp á spítala vegna gruns um reykeitrun, svo var þó sem betur fer ekki. Ég var tiltölulega róleg á meðan á öllu þessu stóð. Var reyndar pínulítið að hafa áhyggjur af því að klifra upp í svona slökkvuliðskörfu svona verandi á fjórðu hæð, þið skiljið. En til þess kom nú ekki. Nokkrum dögum eftir þetta, þegar búið var að reykræsta og gera og græja var hinsvegar eins og allt springi bara. Ég var stanslaust með áhyggjur af öllu. ÖLLU. Ég man ennþá hvernig tilfinningin var. Allir vöðvar voru spenntir alltaf, ég var með stanslausan hnút í maganum. Ég var komin með áfallakvíðaröskun. Merkilegt hvernig hugurinn virkar. Ég hafði ekki hugmynd um að ég hefði tekið eldinn svona nærri mér, fyrr en þarna, nokkuð löngu síðar.
Kvíðinn hjá mér sneri í fyrsta lagi að því að ég var með stanslausar áhyggjur af því að það væri kveiknað í aftur. Þegar ég var heima var ég eiginlega bara með augað límt á gægjugatið til að athuga hvort ég sæi reyk. Ég get heldur ekki lýst því hversu mikið maginn fór á hvolf þegar brunabjallan fór af stað í skólanum - sem gerðist mjög oft. Ég byrjaði öll að titra og fannst ferlega óþægilegt að alltaf var bara treyst á það að hún hefði nú bara farið af stað útfrá eldhúsinu. Í öðru lagi, var ég sífellt að greina sjálfa mig með allskyns sjúkdóma. Nefndu það, ég hef sko örugglega greint mig með það einhverntíma á þessum tíma. Ef ég fann fyrir einhverjum verk einhversstaðar var ég komin með krabbamein, ef ég fékk hausverk var ég annaðhvort með heilahimnubólgu, heilablóðfall eða heilaæxli.Ef ég heyrði um nýja sjúkdóma var ég nánast undantekningalaust komin með hann stuttu síðar. Í þriðja, ogsíðasta lagi varð ég alveg bilaðslega flughrædd. Eins og gefur að skilja varð þetta heldur betur þreytandi til lengdar. Ég fór til sálfræðings sem vann einhverskonar kraftarverk. Veit ekki einu sinni enn hvernig hún fór að því. Allt í einu var ég bara hætt þessu, þar munaði mest um að vera laus við þessar endalausu sjúkdómsgreiningar. Við fluttum líka skömmu síðar og þar með varð eldhræðslan alveg úr sögunni.
Allir verða einhverntíma kvíðnir og það er líka bara eðlilegt. Það er fullkomlega eðlilegt að vera kvíðinn fyrir próf, eða fyrir því að koma fram fyrir framan fólk eða að vera pínulítið stressaður fyrir að stíga upp í flugvél. Ég verð t.d. mjög auðveldlega kvíðin fyrir próf, eða, stressuð öllu heldur. Það er auðvitað bölvuð vitleysa útaf fyrir sig en hvað um það. Mér finnst líka ekkert voðalega gaman þegar það er mikil ókyrrð í flugum og fyrsta hugsun er alltaf; "jæja, hér endar þetta þá....". Aftur - bölvuð vitleysa og ég er yfirleitt fljót að þagga niður í ´þessum hugsunum. Sá kvíði sem maður upplifir hinsvegar þegar maður er haldinn kvíðaröskun er eitthvað allt annað, a.m.k. ef ég tala fyrir mína parta. Það verður líkamlega vont og maður getur ekki hætt. Getur ekki hætt að hugsa og tapar sér eiginlega bara í eigin hugsunum. Svo ég segi það aftur, það er merkilegt hvernig hugurinn virkar!
Núna, fyrir mjög stuttu, poppaði þessi tilfinning upp aftur. Eftir margra ára dvala. Þannig er, til að gera langa sögu stutta, þá fann ég 3x, á um viku tímabili, fyrir aukaslögum í hjartanu. Það lýsti sér þannig að mér fannst eins og hjartað væri bara stopp og færi svo hægt af stað aftur. 2x fór ég upp á slysó. Þá, og eftir það, er ég búin að fara í allskonar tékk. Blóðprufur, röntgen, ómun og holter. Allt kom fullkomlega eðlilega út (á að vísu eftir að fá niðurstöður úr holternum) og mér sagt margsinnis, af fagfólki, að hafa engar áhyggjur af þessu. Ég gat hinsvegar ekki hætt. Ég hugsaði stanslaust um hvernig hjartað væri að slá, þá og þá stundina. Fann oft fyrir óþægindum og var hrædd. Ó ég var svo hrædd. Kvíðatilfinningin algerlega gleypti mig. Ég held að þeir sem ekki hafa þurft að kljást við svona meiriháttar kvíðaköst geti í raun ekki alveg ímyndað sér hvernig þetta er. Þetta er skelfilegt og maður er svo fastur, fastur í eigin rugl-hugsunum.
Kvíðinn er sem betur fer horfinn og stoppaði ekki lengi við. Ég er voðalega fegin. Maður verður alveg uppgefin að vera alltaf í einhverskonar "fight-or-flight" ástandi. Með alla vöðva spennta og hugsanirnar á milljón. Það er ekkert líf að lifa alltaf í stöðugum ótta og kvíða. Við eigum bara eitt líf og verðum að njóta þess, það er nefninlega svo stórkostlegt! Ég þurfti ekki að leita mér aðstoðar í þetta sinnið enda tókst mér að vinna á þessu sjálf á stuttum tíma. Ég get hinsvegar ekki mælt nógu mikið með því, ef maður er að burðast um með kvíðahnút sem virðist stærri en steypireyður, að leita sér hjálpar hjá sérfræðingi. Það er nefninlega, í flestum tilfellum, enginn vandi að laga þetta!

Monday, February 9, 2015
Af törnum, rækt og íþróttakálfi
Mikið ferlega hef ég verið léleg hér undanfarið! Það skal kannski engan undra en ég hef verið í vægast sagt bilaðri törn. Það er svosem ekkert lát á því fyrr en einhverntíma seinna, en er það ekki bara líf og fjör?
Eins þakklát og ég er fyrir öll þau tækifæri sem ég hef fengið undanfarið get ég eiginlega ekki orðið beðið eftir að geta sinnt bara einu í einu, eða í mesta lagi tveimur hlutum :)
Það er orðið alveg til skammar hvað það er langt síðan ég fór í ræktina síðast. Þessi törn einhvernveginn tók af mér öll völd. Ég veit að tíminn er engin afsökun þegar kemur að hreyfingu, en þegar við hjónin erum bæði á haus hverja einustu mínútu alla daga er eiginlega ekki mikið eftir. En um leið og ég ákvað að láta tímaleysi ekki standa í vegi fyrir ræktinni varð ég veik. Ég er enn að berjast við þessa bölvuðu pest sem virðist ætla að að staldra óþarflega lengi við. Einkadóttirin ákvað þó upp á sitt einsdæmi að mamman skyldi taka með sér æfingu áður en hún færi að sofa. Jább, mikið rétt, hún er tveggja ára.. Hún lét mig hanga á upphífingarstönginni okkar, gera armbeygjur, planka og bjarnagöngu. Það þýddi ekkert fyrir mig að malda í móinn. Stefni að því að mæta í síðasta lagi á fimmtudaginn í ræktina, eitthvað þarf ég að gera til að halda í við litla íþróttakálfinn minn.

Subscribe to:
Posts (Atom)